08.06.2011

Barna- og unglingastarf íþróttafélaga í Hafnarfirði styrkt um 9 milljónir króna

Ellefu aðildarfélög Íþróttabandalags Hafnarfjarðar hlutu í gær samtals 9 milljóna króna styrki til eflingar barna- og unglingastarfs félaganna. Að styrkjunum standa Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan á Íslandi og voru þeir afhentir í höfuðstöðvum álversins í Straumsvík.

Um er að ræða fyrri afhendingu ársins á árlegum 15 milljóna króna styrk samkvæmt samstarfssamningi ÍBH, Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarbæjar. Greiðir Rio Tinto Alcan 9 milljónir á ári og Hafnarfjarðarbær 6 milljónir.

Samstarf þessara þriggja aðila hefur staðið frá árinu 2001.

Fjárhæð vorúthlutunar skiptist á félögin eftir fjölda iðkenda 16 ára og yngri en við desemberúthlutun er útdeilt með hliðsjón af námskrám félaganna og menntunarstigi þjálfara.

Eftirfarandi félög hlutu styrk í gær:

Knattspyrnufélagið Haukar                                   2.737.023,-
Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH)                          2.188.456,-
Fimleikafélagið Björk                                           2.014.000,-
Sundfélag Hafnarfjarðar (SH)                                  604.781,-
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH)                      362.481,-
Golfklúbburinn Keilir                                               354.728,-
Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH)                         323.713,-
Siglingaklúbburinn Þytur                                          222.916,-
Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH)                         96.920,-
Hestamannafélagið Sörli                                            58.152,-
Íþróttafélagið Fjörður                                                36.830,-

Rannveig Rist, Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri og Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH, lögðu öll áherslu á mikilvægi þessa samstarfs fyrir íþróttalíf bæjarins, og þann margvíslega samfélagslega ávinning sem öflugt íþróttastarf hefur í för með sér. Hafði Rannveig jafnframt á orði að gullsöfnun hafnfirskra íþróttamanna væri orðin slík að móðurfélag álversins, Rio Tinto, væri farið að muna talsvert um hana, en gull er ein af afurðum fyrirtækisins.

 

Á myndinni eru Rannveig forstjóri álversins, Guðmundur Rúnar bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Hrafnkell ásamt fulltrúum aðildarfélaga ÍBH við afhendingu styrkjanna í Straumsvík í gær.


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar