Frestur til að skila inn ábendingum við drög að tillögu að matsáætlun vegna stækkunar ISAL er nú runninn út. Á næstu tveimur vikum verður unnin endanleg tillaga að matsáætlun, að teknu tilliti til ábendinganna sem bárust, og verður hún svo send Skipulagsstofnun ríkisins til umsagnar. Stofnunin mun svo hafa fjórar vikur til að skoða tillöguna, samþykkja hana eða gera við hana athugasemdir. Fallist Skipulagsstofnun á tillöguna getur framkvæmd við mat á áhrifum mögulegrar stækkunar ISAL hafist.