05.12.2014

Rio Tinto Alcan á Íslandi og Landsvirkjun endurskoða rafmagnssamning

Rio Tinto Alcan á Íslandi og Landsvirkjun hafa samið um breytingu á orkuafhendingu sem endurspeglar betur orkuþörf álversins í Straumsvík.

Árið 2010 gerðu Landsvirkjun og Rio Tinto Alcan með sér rafmagnssamning sem nær til ársins 2036. Landsvirkjun reisti Búðarhálsvirkjun til að efna samninginn og Rio Tinto Alcan réðist í 500 milljóna dollara fjárfestingarverkefni í því skyni að auka framleiðslu álversins og hefja framleiðslu á verðmætari afurðum.

Flestum verkþáttum fjárfestingarverkefnis álversins er lokið:

  • Framleiðsla er hafin á verðmætari afurðum í kjölfar breytinga á steypuskála.
  • Mengunarvarnir hafa verið bættar (uppsetningu nýrra lofthreinsistöðva er lokið og þær verða að fullu komnar í rekstur á næsta ári).
  • Rekstraröryggi hefur verið bætt með endurbótum á aðveitustöð.

Eins og Rio Tinto Alcan hefur áður upplýst hefur framleiðsluaukningin sem stefnt var að ekki náðst að fullu. Ollu því ófyrirséðar hindranir hvað varðar bæði öryggismál og tæknilega þætti verkefnisins. Álverið hefur af þeim orsökum ekki fullnýtt þá orku sem samningurinn frá 2010 felur í sér.

Samkomulag fyrirtækjanna felur í sér þrennt:

  • Rio Tinto Alcan skilar Landsvirkjun 35 MW af ónotuðu afli, sem hægt er að nota til að auka framboð raforku á íslenskum raforkumarkaði.
  • Rio Tinto Alcan hefur í nokkur ár möguleika á að endurheimta orku í samræmi við þarfir sínar, upp að því marki að aflnotkun álversins verði allt að 422 MW, enda leitar fyrirtækið nú leiða til að ná áður fyrirhugaðri framleiðsluaukningu með öðrum leiðum. Þetta myndi styrkja samkeppnishæfni álversins og einnig efla mikilvægt framlag þess til íslensks efnahagslífs.
  • Rio Tinto Alcan greiðir Landsvirkjun 17 milljónir Bandaríkjadollara vegna kostnaðarins sem það hafði í för með sér fyrir Landsvirkjun að reisa Búðarhálsvirkjun fyrr en þörf krafði.

Breytingarnar á samningnum eru báðum aðilum til hagsbóta. Landsvirkjun öðlast aukna möguleika til raforkusölu og á sama tíma er möguleikum Rio Tinto Alcan til áframhaldandi vaxtar viðhaldið.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar: "Landsvirkjun fagnar samkomulaginu, en með því er greitt úr ófyrirséðum vandamálum sem upp komu við fjárfestingarverkefni Rio Tinto Alcan. Samkomulagið grundvallast á langvarandi viðskiptasambandi fyrirtækjanna sem og virðingu fyrir gagnkvæmum viðskiptahagsmunum."

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi: "Við erum stolt af því að hafa staðið að langstærsta fjárfestingarverkefni á Íslandi á undanförnum árum, í því skyni að framleiða verðmætari afurðir, auka rekstraröryggi, efla mengunarvarnir og auka framleiðsluna. Þetta hefur skapað yfir 1.000 ársverk á tímum þegar íslenskt efnahagslíf þurfti hvað mest á þeim að halda. Samkomulagið við Landsvirkjun er enn ein staðfesting þess að viðskiptasamband áliðnaðar og orkuframleiðslu á Íslandi einkennist af gagnkvæmri virðingu og gagnkvæmum ávinningi."


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar