12.02.2020

Fréttatilkynning

Fréttatilkynning frá Rio Tinto

12. febrúar 2020

Rio Tinto hyggst hefja sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins í Straumsvík (ISAL) til að meta rekstrarhæfi þess til framtíðar og leita leiða til þess að bæta samkeppnisstöðu þess.

Gert ráð fyrir að rekstur ISAL í krefjandi aðstæðum í áliðnaði verði áfram óarðbær til skemmri og meðallangs tíma sökum ósamkeppnishæfs orkuverðs og lágs verðs á áli í sögulegu samhengi.

Rio Tinto leitar nú allra leiða til að gera álverið arðbært og samkeppnishæft á alþjóðamörkuðum, meðal annars með samtali við stjórnvöld og Landsvirkjun. 

Alf Barrios, forstjóri Rio Tinto Aluminium, segir:

 

„Við höfum unnið markvisst að því að bæta afkomu ISAL. Álverið er engu að síður óarðbært og er ekki samkeppnishæft í krefjandi markaðsaðstæðum vegna hás raforkukostnaðar.

Rio Tinto mun kanna þær leiðir sem álverinu eru færar með það að markmiði að gera rekstur ISAL fjárhagslega sjálfbæran á ný.

Framlag ISAL til íslensks efnahagslífs er umtalsvert og við munum vinna náið með þeim sem eiga gagnkvæma hagsmuni að því að treysta framtíð ISAL, þ.m.t. ríkistjórn, Landsvirkjun, starfsfólki, stéttarfélögum og sveitarfélaginu.

Í fyrirhugaðri endurskoðun verða allar leiðir skoðaðar, þar á meðal frekari framleiðsluminnkun og mögulega lokun. Endurskoðunarferlinu verður lokið á fyrri helmingi árs 2020.

Vegna taprekstrar hefur framleiðsla ISAL þegar verið minnkuð í 85 prósent af afkastagetu álversins.

ISAL er að fullu í eigu Rio Tinto. Í Straumsvík starfa um 500 manns.

 

Upprunalega fréttatilkynningu Rio Tinto má finna hér

 

Sé einhver óvissa um merkingu gildir ensk útgáfa tilkynningunar.

 


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar