Rannveig Rist hlaut Heiðursverðlaun Stjórnvísis

12 feb. 2026

Stjórnvísi heiðraði Rannveigu Rist, forstjóra Rio Tinto á Íslandi, fyrir framlag sitt til stjórnunar við hátíðlega athöfn þann 9. febrúar 2026. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, afhenti Rannveigu verðlaunin. Heiðursverðlaunin voru veitt í þriðja sinn frá stofnun félagsins árið 1986. Rannveig er vel að þessum verðlaunum komin eftir tæplega 36 ára feril hjá ISAL og þar af tæplega 30 ár sem forstjóri.

Í umsögn dómnefndar segir um Rannveigu:

Rannveig var fyrsta konan til að verða forstjóri í stórfyrirtæki á Íslandi. Þegar hún tók við því starfi var hún ung kona og það þótti bæði til marks um hugrekki stjórnenda þess tíma en ekki síður að í þessari konu bjó eitthvað einstakt: sterkur leiðtogi, sem kom svo sannarlega í ljós. Á starfsferli Rannveigar í Straumsvík hefur fyrirtækið bætt árangur á flestum sviðum. Framleiðslugeta hefur aukist, tæknilegar framfarar hafa verið miklar og menntun starfsfólks hefur verið sett í öndvegi með stofnun Stóriðjuskólans. Öryggismál, heilbrigði, góð samskipti, jafnrétti og umhverfismál hafa öll tekið stakkaskiptum frá því að Rannveig tók við fyrirtækinu. Framleiðni hefur aukist og losun gróðurhúsalofttegunda er nú með því lægsta sem þekkist í áliðnaði.