15.02.2021

Breyttur samningur styrkir samkeppnishæfni í Straumsvík

Landsvirkjun og Rio Tinto á Íslandi hafa samþykkt viðauka við raforkusamning fyrirtækjanna frá árinu 2010. Samkomulagið rennir styrkari stoðum undir samkeppnishæfni álversins í Straumsvík við áframhaldandi starfsemi þess.

Landvirkjun og Rio Tinto fagna þessum áfanga, sem styrkir rekstrargrundvöll álversins á næstu árum. Þá tryggir samkomulagið fyrirsjáanlegt tekjustreymi Landsvirkjunar og aukinn sveigjanleika í viðskiptunum fyrir báða aðila. Eins og áður kveður samningurinn á um sölu á 390 MW eða 3.415 GWst á ári og gildir til ársins 2036.

Grunnur raforkuverðsins hefur tekið breytingum, en er áfram bundinn Bandaríkjadal og tengdur bandarískri vísitölu neysluverðs (CPI).  Að litlum hluta er samningurinn einnig tengdur álverði, sem þýðir aðlögun verðs að alþjóðlegum mörkuðum að einhverju leyti.

Samhliða samkomulaginu hefur Rio Tinto ákveðið að draga til baka kvörtun sína til Samkeppniseftirlitsins frá því í júlí 2020 varðandi orkusölu til álversins í Straumsvík.

Samkomulagið er viðauki við gildandi samning frá 2010. Trúnaðarákvæði þess samnings eru enn í gildi og samningurinn verður því ekki opinberaður að svo stöddu.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar: „Við fögnum því að náðst hafi samkomulag um breytingar á orkusölusamningnum, eftir beiðni Rio Tinto þar um. Niðurstaðan er báðum aðilum í hag og um leið eykur hún skilvirkni raforkukerfisins á Íslandi. Markmið Landsvirkjunar er, líkt og áður, að tryggja fyrirsjáanlegar tekjur um leið og við tökum tillit til breytinga á alþjóðlegum mörkuðum og á þörfum viðskiptavina okkar.

Við hjá Landsvirkjun höfum lagt áherslu á að styðja viðskiptavini okkar á þessum krefjandi tímum. Við erum staðráðin í að halda áfram að bjóða samkeppnishæft orkuverð um leið og við sinnum því hlutverki okkar að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkuauðlinda, sem okkur hefur verið treyst fyrir, til hagsbóta fyrir þjóðina alla.”

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi: „Þetta eru ánægjuleg tíðindi sem eyða óvissu um starfsemina í Straumsvík, um leið og samkeppnishæfni okkar batnar. Við í Straumsvík getum öll verið ákaflega stolt af þeim árangri sem starfsfólk ISAL hefur náð undanfarin ár. Þrátt fyrir margra ára óvissu hefur öll starfsemin einkennst af fagmennsku og æðruleysi og missti starfsfólk ekki sjónar af því sem mestu máli skiptir. Öryggis- og umhverfismálin hafa verið í mjög góðum farvegi, framleiðslan gengið vel og gæði hennar mjög stöðug og mikil. Þótt þessum áfanga sé náð erum við ekki komin fyrir vind.  Áfram eru krefjandi aðstæður í áliðnaði og verður ISAL áfram undir pressu að ná árangri. Með þessu samkomulagi um raforkumál getum við hins vegar einbeitt okkur að framleiða hágæða ál með þarfir viðskiptavina okkar í huga.

Frá undirritun samkomulagsins: Rannveig Rist, Sigurður Þór Ásgeirsson, Tinna Traustadóttir og Hörður Arnarson.

 


« til baka

Fréttasafn

2024

febrúar, janúar

2023

október, janúar

2022

október, júní, janúar

2021

október, maí, febrúar, janúar

2020

maí, febrúar, janúar

2019

september, ágúst, júní, maí, febrúar, janúar

2018

júní, maí, febrúar, janúar

2017

desember, nóvember, september, júní, maí, janúar

2016

nóvember, júní, maí, febrúar, janúar

2015

desember, október, mars, febrúar, janúar

2014

desember, nóvember, október, maí, mars, febrúar, janúar

2013

júlí, maí, apríl, mars, janúar

2012

desember, nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2011

nóvember, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2010

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2009

desember, nóvember, október, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2008

desember, nóvember, október, september, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2007

desember, nóvember, október, september, apríl, mars, febrúar, janúar

2006

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2005

nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

2004

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, apríl, mars, febrúar

2003

desember, október, júlí, júní, maí, apríl, febrúar, janúar

2002

desember, nóvember, október, ágúst, júlí, júní, maí, mars, febrúar, janúar

2001

desember, nóvember, október, september, janúar