01.02.2003
Sumarstörf - Sækið um fyrir 14. febrúar
Við viljum ráða um 130 manns í sumarvinnu og leitum því að duglegu starfsfólki til ýmissa starfa; m.a. í kerskálum, steypuskála, mötuneyti og ræstingum. Um er að ræða störf á tímabilinu 15. maí til 15. september, eða eftir nánara samkomulagi, og í flestar stöður er þess krafist að umsækjendur hafi aflað sér vinnuvélaréttinda áður en störf hefjast. Umsækjendur þurfa að verða 18 ára á árinu eða eldri.
Við leggjum áherslu á hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi og árvekni. Tölvu- og tækniþekking eru kostir en ekki skilyrði. Flest störfin eru unnin á þrískiptum vöktum (8 klst.) þar sem unnar eru 6 vaktir á 5 dögum með 5 daga vaktafríi á milli. Við leitum einnig að sumarliðum til að vinna eftir öðru vinnufyrirkomulagi. Allir nýir starfsmenn fá markvissa þjálfun í upphafi starfstíma.
Umsóknareyðublað getur þú nálgast með því að smella hér.
Umsóknir skal senda til Alcan á Íslandi, pósthólf 244, 222 Hafnarfirði, fyrir 14. febrúar.
« til bakaDeila